Wednesday, September 18, 2013

Ballið byrjað !

Já, skólinn byrjaði á mánudaginn og eins og er þá skil ég ekki orð og viti menn ég ensku nördinn er farin að elska ensku. Mér finnst hinsvegar ekki jafn skemmtilegt í eðlisfræði og líffræði og sem betur fer þarf ég ekki að fara í heimspeki og svo eru kennararnir eins og klipptir út úr bíómynd. Eðlisfræði kennarinn er um 150cm og vel girtur og lífræðikennarinn er með gloss í pinnahælum og þau kunna litla sem enga ensku þannig að þau tala bara portúgölsku og ef ég skil ekki þá tala þau bara hærra eins og ég skilji þau eitthvað betur þannig hahaha. En búið er að finna kennara sem mun kenna mér portúgölsku, líklega á meðan hinir eru í heimspeki en það er ekki alveg ákveðið en þetta fer svo allt held ég að smella saman þegar að þeir tímar byrja.
Og í dag hitti ég Diönu(dóttir vinkonu maman) á kaffihúsinu í háskólanum og hún sagði mér frá fjórum fótboltaliðum sem eru nálægt Coimbra og ég ákvað að æfa með liðinu hennar sem er í um 30mín aksturs fjarðlægð. Farið er í rútu á milli og æfingarnar eru 3-4 á viku, þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga og svo einhverja sunnudaga svo á þriðjudögum verður enginn tími fyrir heimþrá haha, skóli frá 8:30 til 18:35 og þar af 5 klukkutimar af eðlisfræði og lífræði og svo æfing frá 19:30 til 23:30. En fyrsta æfingin mín er núna á föstudaginn og tímabilið hefst svo 28.september og það gæti ferið að ég muni spila sem framherji í vetur haha það gæti orðið skrautlegt.

p.s Ég mæli með grísku jógúrti og jarðaberjasultu mitt nýja uppáhalds ! :D

No comments:

Post a Comment