Tuesday, September 24, 2013

Sólin ekki að höndla sólina....




Ég og sólin erum greinilega ekkert góðar vinkonur eftir allt saman. Ég varð víst veik eftir að hafa keppt i 35 stiga hita á sunnudaginn og ég fékk líka rosa flotta bólgu og marblett svo ég er búin að vera mygla yfir Desperate housewives. Og það er alveg ótrúlegt hvað allir eru hugulsamir hérna, allir að spyrja mig á facebook hvernig mér líði og hvort ég komi ekki alveg örugglega í skólann á morgun haha.
Og svo fékk ég þær góðu fréttir í dag að ég mun svo eftir allt saman vera í Heimsspeki í vetur, vúhúu er alveg í sjöunda himni ! haha en ég mun allavegana byrja í portúgölsku tímunum á fimmtudag sem er mjög jákvætt.
Og baðkarið er vel nýtt og sérstaklega hentugt þegar maður á að slaka á!


mynd af: http://instagram.com/vittosol

Wednesday, September 18, 2013

Ballið byrjað !

Já, skólinn byrjaði á mánudaginn og eins og er þá skil ég ekki orð og viti menn ég ensku nördinn er farin að elska ensku. Mér finnst hinsvegar ekki jafn skemmtilegt í eðlisfræði og líffræði og sem betur fer þarf ég ekki að fara í heimspeki og svo eru kennararnir eins og klipptir út úr bíómynd. Eðlisfræði kennarinn er um 150cm og vel girtur og lífræðikennarinn er með gloss í pinnahælum og þau kunna litla sem enga ensku þannig að þau tala bara portúgölsku og ef ég skil ekki þá tala þau bara hærra eins og ég skilji þau eitthvað betur þannig hahaha. En búið er að finna kennara sem mun kenna mér portúgölsku, líklega á meðan hinir eru í heimspeki en það er ekki alveg ákveðið en þetta fer svo allt held ég að smella saman þegar að þeir tímar byrja.
Og í dag hitti ég Diönu(dóttir vinkonu maman) á kaffihúsinu í háskólanum og hún sagði mér frá fjórum fótboltaliðum sem eru nálægt Coimbra og ég ákvað að æfa með liðinu hennar sem er í um 30mín aksturs fjarðlægð. Farið er í rútu á milli og æfingarnar eru 3-4 á viku, þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga og svo einhverja sunnudaga svo á þriðjudögum verður enginn tími fyrir heimþrá haha, skóli frá 8:30 til 18:35 og þar af 5 klukkutimar af eðlisfræði og lífræði og svo æfing frá 19:30 til 23:30. En fyrsta æfingin mín er núna á föstudaginn og tímabilið hefst svo 28.september og það gæti ferið að ég muni spila sem framherji í vetur haha það gæti orðið skrautlegt.

p.s Ég mæli með grísku jógúrti og jarðaberjasultu mitt nýja uppáhalds ! :D

Friday, September 13, 2013

Upps !

Já ég er svo snidug ad ég var med gmailid og lykilordid af blogginu á posted mida í tolvunni minni og ég skildi hana eftir á Íslandi, ekkert mál eg aetladi bara ad fá thetta sent í símann minn en neeei ég er komin med nýtt símanúmer haha og eftir klukkutíma bras komst ég loksins inn. 

DASTA VIKA !
ferdalagid tók um 20 tíma og ég held ad ég hafi aldrei verid jafn ánaegd ad sjá rúm en vid fengum thó ekki ad sofa út thví campid tok vid. Á sunnudeginum hittum vid svo fjolskyldurnar okkar og vid fjolskyldan keyrdum svo í um 2 tíma frá Lisabon til Coimbra. Ég er eini skiptinemin af 81 í Portúgal sem er í Coimbra. Coimbra er háskólabaer og er ótrúlega fallegur ! Háskólinn sjálfur skemmir ekki og thad er svo flott ad sjá nemendurnar thví thau eru oll í ákvednum búning. Sú sem skrifadi Harry Potter baekurnar leitadi ad innblaestri frá háskólnum hér í Coimbra. En mikid er búid ad vera gera sídustu viku og ég er svona nokkurnvegin farinn ad rata á mikilvaegustu stadina.

Ég var búin ad tala um ad blogga annan hvern fostudag en ég hef ákvedid ad gera thad bara thegar ad mig langar til en minnsta lagi adrahverja viku. Og afsakid thad ad ég er ekki med íslenskt lykklabord en ég aetla reyna ad redda thví fyrir naestu faerslu :)
Ég og Sigga á flugvellinum eftir langt ferdalag.

Á sunnudeginum og já thau standa oll a tám nema Tiago haha.
                                             

Zoé dró mig á judo aefingu og ég held ad ég haldi mig vid fótboltaskóna.

Og á midvikudaginn fór ég í sundlaugarparty med Cate og 5 vinum hennar sem var haldid fyrir skólann minn.
Og mér leid eins og ég vaeri í 90210 haha.

Og skólimm byjrar á mánudaginn og thetta er stundataflan mím. Og sumir vaela um ad their séu í skólanum til fjogur haha.

Og svo er ég rosa dugleg ad setja myndir á http://instagram.com/vittosol :D