Friday, August 30, 2013

Vika í ævintýrið !

Nú eru aðeins 7 dagar þangað til ævintýrið hefst og síðasti vinnudagurinn og síðasta fótboltaæfingin í dag. Ég er komin langt með að pakka öllu dótinu mínu í kassa, því jú ég á stóra fjölskyldu og þarf því einhver annar að fá herbergið mitt á meðan og hlutirnir fara fækkandi á To do listanum. Eitt á listanum var að kaupa ferðatösku og ég keypti þessar fínu skærbleiku töskur með blómum á, ég nefndi þetta við Zoé systur mína í portúgal því hún er ekkert sérlega hrifin af bleiku en hún sagði að ég ætti þá allavegan ekki erfitt með að finna töskuna mína á flugvellinum. En ég ætla að reyna vera dugleg að blogga úti og hafði hugsað mér að gera það svona aðra hverja viku :)

2 comments:

  1. Ert flottust viktoria min, gangi þér sem allra best úti og have the time of your'e life, sakna þín
    - Henný

    ReplyDelete
  2. Takk elsu Henný, sakna þín líka :( og gangi þér vel í nýja skólanum í noregi ! :)

    ReplyDelete